Gerð stafaalbúms Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Þórdís   
Mánudagur, 02. mars 2009 10:37

Gerð stafaalbúms

 

Gott er að nota pakka utan af morgunkorni í stafagerðina til að gera þá þykka og góða. Jafnvel þótt þett virki sem þunnur pappi, þá verður hann í flottri þykkt þegar búið er að klæða pappann beggja megin.

 

Farið í Word og veljið þar Word Art. Þar veljið þið leturgerðina og passið að hafa stafinn tóman að innan (sparar blek og auðveldar að klippa út).

Best er að aðlaga fyrsta stafinn að þeirri stærð sem þið óskið og prenta út einn staf. Þegar hann hefur verið prentaður út að tvíklikka á stafinn sem er á skjánum ykkar og setja nýjan staf í staðinn. Með þessu móti fáið þið alla stafina jafn stóra. Eða þá að afrita (copy/paste) stafinn sem þið eruð búnar að aðlaga nokkrum sinnum á eitt blað og þá tvíklikka á þá stafi sem þið viljið breyta. Með því að nota copy/paste og tvíklikka tryggið þið að stafirnir séu jafn stórir. En það atriði er mikilvægt til að bókin líti vel út.

 

Leggið svo stafina á pappann, skerið pappann í sömu “hæð” og stafirnir, gott að nota skerann sinn í það. Leggið svo útklipptan pappírsstafinn lengst hægra meginn á pappann og klippið meðfram stafnum, hægra megin, að ofan og neðan og “inní” eftir því sem við á. Ekki klippa vinstri hlið stafsins.

 

Leggið svo orðið saman þannig að vel sjáist hvað stendur, og klippið þá umfram enda vinstra megin við, til að jafna bókina. 

 

 

Þá er komið að því að klæða stafina, muna að gera beggja megin. Munið tilgang bókarinnar. Ef þið ætlið að nota bókina sem gestabók, hafið þá pappírin sem þið klæðið með þannig gerðan að hægt sé að skrifa nafn sitt og kveðju án þess að lesandinn þurfi að rýna í það.

 

 

 

Gaman getur verið að skreyta bókina með límmiðum, myndum, textum og öðru sem er viðeigandi því tilefni sem til er ætlast af bókinni. Í þessu tilviki er hún ætluð sem gestabók í eitt sumar á meðan þeir sem fengum bókin búa í Eyjum. Prentaðir voru út  hinir ýmsu textar um Vestmannaeyjar, bæði staðreyndir, fróðleikur, fyndni og fleira í þeim dúr.

 

Stundum eru stafir þannig gerðir að ekki er hægt að lesa þá auðveldlega þegar vinstri hliðin er ekki klippt út. Eins og sést í þessu tilfelli í “J”. Ég klæddi því J-plötuna eins og hina stafina, en klippti svo J-ið út aftur í pappa, klæddi það öðruvísi og límdi svo ofan á.

Gott er að gera svo heila baksíðu, eins og sést hér dökkblá bakvið R-ið. Það styrkir bókina og gerir orðið greinilegra. Ef orðið er stutt og bókin á að nota sem gestabók í fjölmenna veislu eða slíkt, má hafa nokkrar heilar síður bakvið orðið.

 

Þá á bara eftir að festa bókina saman, margar aðferðir eru notaðar hér og fer líklega eftir þykkt bókar.

Í þessu tiflelli var sótt borvél og eiginmaður sem boraði í gegnum bókina og setti svo hringi í gegn sem síðan voru skreyttir með ýmsum borðum og böndum.

Ég ýminda mér að hægt væri að nota “bind it all” vélina og ýmisslegt annað til að gera göt, setja hringi og skreyta með borðum. Eins hef ég notað borða með girni innan í (styrkir borðann),

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. mars 2009 12:13
 

Maraþon síðurnar

anna gu__n__.jpg