Welcome to the Frontpage
Notendaskilmálar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 11. maí 2010 18:30

Við skráum okkur alltaf undir réttu nafni  og setjum inn mynd.

 

Þeir sem sækja um aðgang á síðunni undir gælunöfnum eða nikkum er ekki veittur aðgangur.

 

Þetta gerum við til þess að spjallið sé persónulegra

 

•Scrapbook er vefsetur fyrir íslenska skrappara.

 

•Öllum er leyfilegt að skrá sig á spjallið.

 

• Við áskiljum okkur rétt á að taka út eða læsa umræðum sem að við teljum ekki við hæfi eða brjóta á einhvern hátt reglur spjallsins. Einnig áskiljum við okkur rétt til að banna hvern sem er, með  ástæðu.

 

• Notandi á scrapbook er persónulega ábyrgur fyrir öllu efni sem hann birtir á vefnum og öllum umræðum sem hann sendir inn á spjallið.

 

•Scrapbook getur ekki undir neinum kringumstæðum borið ábyrgð á orðum og athöfnum notenda.

 

• Scrapbook  mun ekki undir neinum almennum kringumstæðum birta upplýsingar um notanda eða veita þær upplýsingar til þriðja aðila.

 

• Scrapbook áskilur sér rétt til að eyða út allri neikvæðri umræðu um einstaklinga sem ekki á rétt á sér svo og efni og gögnum, myndum sem ekki teljast viðeigandi.

 

•Á spjallinu skal ríkja trúnaður, bæði innan lokaðra hópa og á spjallinu öllu. Ekki er leyfilegt að ræða það sem fram á spjallinu eða hittingum við utanaðkomandi.

 

•Bannað er að setja inn þræði eða innlegg sem eru viljandi gerð til að æsa upp eða móðga aðra notendur.

 

•Samskipti milli notenda og stjórnenda um viðvaranir, bönn eða aðrar refsingar eru einkamál og bannað er að setja slíkt inn á spjallið.

 

•Ekki má setja inn auglýsingar annars staðar en í auglýsingadálkinn.

 

Fyrirtæki mega auglýsa inná sérmerktum þræði, enn jafnframt er ætlast til að þau fari líka eftir settum reglum og noti mynd og sitt nafn.

 

Viðmiðunarreglur um þáttöku í spjallinu:

 

Spjall Scrapbook er vinalegt samfélag og við viljum halda því þannig áfram og allir þurfa að taka þátt í umræðunni.

 

Vegna þessa höfum við sett reglur um lágmarks þátttöku í spjallinu.

 

Ef notandi hefur ekki tekið þátt í umræðum 1 mánuð eftir að hann skráir sig á spjallið þá er notandanum eytt án viðvörunar.

 

Ef að notandi er með minna en 50 pósta og hefur verið skráður á spjallið í meira en mánuð eða hefur ekki skráð sig inn á spjallið í meira en 90 daga þá er notandanum eytt án viðvörunar. En auðvitað er hægt að láta okkur vita ef það er verið að fara í langt frí.

 

Til að fá að vera með þarf að taka þátt í umræðum og vera virkur notandi, út á það gengur þetta spjall.


Scrapbook klúbburinn áskilur sér rétt til þess að breyta eða uppfæra þessa skilmála fyrirvaralaust.

Vefstjóri.

 

Síðast uppfært 11 maí 2010

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. maí 2010 18:36
 
Scrapbook.is Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Administrator   
Þriðjudagur, 31. mars 2009 13:00

 

Scrapbook.is er vefsetur fyrir íslenska skrappar. Hér er að finna upplýsingar um allt milli himins og jarðar ,sem  getur komið skröppurum að góðu gagni.

Þetta er klúbbur þar sem við ræðum um skrapp, kortgerð, digitalskrapp, ljósmyndun og margt annað.

Við gefum og þiggjum ráð, reynslu, álit og svo frv.

Þessi klúbbur snýst um fólk sem hefur áhuga á skrappi og öllu sem því fylgir, hér verða allskonar leiðbeiningar, hugmyndslóðir, gallerí, spjall, og leikir sem við getum tekið þátt í og margt fleira.

 

Skráðu þig í dag á spjallið okkar.

Skráning fer fram hér.

 

Síðast uppfært: Föstudagur, 28. ágúst 2009 12:56
 

Kjósa

Veist þú hvað scrapbook er?
 

Notendur

Það eru 3 gestir á síðunni núna

Maraþon síðurnar

gunna.jpg